52 hlupum í átt að fjallshlíðinni ofan við bæinn en þeir eltu okkur uppi og gripu okkur. Þeir bundu mig og báru mig svo niður að sjó.“ Hann þagnaði. „Komst bróðir þinn þá undan?“ spurði ég en iðraðist strax spurningarinnar. Tárin sem streymdu niður kinnar Þorgeirs sögðu meira en nokkur orð. „Ég var látinn liggja í böndum niðri í fjöru þar til þeir komu aftur með fleiri fanga. Þeir komu með fólk af næstu bæjum, konur, karla og börn og líka fullt af kindum og alls konar varningi sem þeir stálu. En ekki fólkið mitt.“ Hvað heldur þú að hafi komið fyrir bróður Þorgeirs?
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=