Sjóræningjarnir eru komnir

flytja út í skip en þau elstu og veikbyggðustu sendi hann aftur inn í múrhúsið. Við fjölskyldan vorum skikkuð í hóp sem var rekinn niður að sjó. Maðurinn sem rak okkur á undan sér var bæði með bjúgsverð og byssu svo að ekki þorði nokkur maður að mótmæla. Þar skipti hann hópnum niður á tvo teinæringa teinæringa og setti vopnaða félaga sína um borð í hvorn bát. Þeir völdu tíu sterklega menn undir árar en hvorki ég né pabbi litum út fyrir að hafa krafta til að róa. Við vorum látnir sitja með mömmu og Systu í botni bátsins ásamt konum og börnum. Báturinn okkar var drekkhlaðinn og róðurinn þungur gegn vindinum, alla leið út að galeiðunni. Ribbaldinn gargaði allan tímann og barði þá sem misstu taktinn með kaðli. Við sem hímdum í botninum þorðum hvorki að hreyfa legg né lið að hreyfa legg né lið. Hver er Múrat Flamenco og hvernig sýnir hann vald sitt gagnvart pabba og hópnum? 43

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=