ÚTSKÝRINGAR Á ORÐUM: Að hrufla sig er að fá rispur eða lítil sár. Hrjóstrugt hraun er hvasst og beitt. Vafningur er dúkur eða klæði sem er vafið um höfuðið. Að dangla er að sparka laust. Múrhúsið var hluti af Dönskuhúsunum, það var steinhús og þótti því greinilega gott fangelsi. Lýsingarnar á hegðun ribbaldanna í Vestmannaeyjum eru byggðar á Reisubók séra Ólafs Egilssonar. Hér er smá brot úr bókinni, stíllinn er dæmigerður fyrir á höfunda á 17. öld: „Þeir fóru sem flugur fljótlega upp á eyjarnar og yfir þær allar sem aðrir jagthundar í stórum hópum með sínum mörgu rauðu blóðmerkjum* og algjörðri stríðsaðferð, með stórum látum og vargahljóðum*, svo að það veika kvenfólk og barnakindur urðu ekki undan hafðar.“ Jagthundur er veiðihundur, rauð rauð blóðmerki eru rauðir fánar og vargahljóð eru úlfahljóð. Barnakindur Barnakindur eru börn. VANGAVELTUR OG HUGLEIÐINGAR VIÐ 4. KAFLA 38
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=