Sjóræningjarnir eru komnir

36 eftir honum og hjó til hans með bjúgsverði svo að hann féll fram fyrir sig og lá hreyfingarlaus. Skelfingarópin frá fólkinu hans nístu gegnum merg og bein. Þessir skúrkar voru miskunnarlausir. Ég vissi að ég yrði að finna annan felustað. Fjallið Háin er góður staður, hugsaði ég. Ef ég kemst óséður upp að austan get ég falið mig þar. Ég beið meðan þeir ráku fangana á undan sér frá Fiskihellum en hljóp þá í átt að fjallinu. Ég var orðinn svo þreyttur að ég skreið á fjórum fótum upp brekkuna og skorðaði mig bak við klett. Þar datt ég út af. Ég vaknaði við að danglað var í síðuna á mér. Ég rifaði augun en þorði ekki að hreyfa mig. Það Hvað heldur þú að gerist? Hugsaðu um hvað það merkir að detta út af.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=