35 Þeir börðu fólk og bundu. Hjuggu og stungu. Ráku fólk á undan sér eins og skepnur. Skutu þá sem veittu mótspyrnu. Ég lá lamaður af ótta en vissi samt að ég yrði að halda áfram. Mín eina von var að komast upp í Fiskihella. Ég stefndi á helli sem ég var handviss um að ræningjarnir myndu aldrei finna, en það setti að mér einhvern óhug svo að á síðustu stundu beygði ég út af leiðinni. Þetta hugboð varð mér til lífs, því nú heyrði ég hávært gelt. Ég fleygði mér snarlega niður. Grimmilegur svartur hundur kom hlaupandi og á eftir honum álíka illilegir menn. Hundurinn hljóp beina leið inn í hellinn en ribbaldarnir eltu og fundu fólk, ef marka mátti sigurópið. Ég fylltist vonleysi þegar ég horfði á þá smala fólkinu út eins og sauðkindum. Fólki sem ég þekkti vel og mætti alltaf í messu hjá pabba. Guð veri með þeim, hugsaði ég og þakkaði mínum sæla fyrir að hafa ekki farið inn í hellinn. Skyndilega tók einn maðurinn á rás út úr hópnum. Einn ribbaldanna hljóp þegar í stað á Hugboð er líka kallað hugskeyti. Hvað merkir að fá hugskeyti? Hvað hefði gerst ef Egill hefði ekki fengið þetta hugskeyti?
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=