Sjóræningjarnir eru komnir

33 inn út úr bænum. Hann reyndi að streitast á móti en mennirnir börðu hann harkalega niður. Hann var rétt að skreiðast á fætur þegar mamma var rekin út með Systu litlu í fanginu. Systa orgaði og reigði sig og sítt pilsið þvældist fyrir mömmu svo að hún missti jafnvægið. Pabbi tók undir handlegginn á henni en ribbaldarnir beittu hörku og hrintu þeim áfram. Á eftir þeim komu fleiri ribbaldar sem ráku á undan sér vinnukonuna sem var með litla barnið sitt í fanginu. Enn stóðu tveir vopnaðir menn á verði utan við bæinn. Ég hefði miklu frekar viljað sjá þá draga gamla og sjúka fólkið út en að horfa upp á það sem gerðist næst. Ofanleiti stóð í björtu báli. Heimilið mitt notalega. Prestsetrið hans pabba sem veitti svo mörgum skjól. Logarnir sleiktu gaflana og lokuðu útgönguleiðum. Ég sá fyrir mér bólið okkar Systu, mömmu- og pabbaból. Guði sé lof að þau voru ekki þarna inni. En hvað með hitt fólkið sem ég sá ekki fara út? Ég gat ekki hugsað þessa hugsun til enda. Ég tók til fótanna. Ég varð að komast undan. Ég ætlaði að verða prestur á Íslandi en ekki þræll

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=