Sjóræningjarnir eru komnir

ÚTSKÝRINGAR Á ORÐUM: Sitja í makindum er að sitja í rólegheitum. Galeiður voru herskip sem voru algeng við Miðjarðarhafið. Þau höfðu segl og árar og stundum var þeim róið af þrælum. Að sigla undir fölsku flaggi er að draga upp rangan fána á skipi til að blekkja. Þetta orðatiltæki er ekki bara notað um skip heldur um alla þá sem villa á sér heimildir. Að taka af skarið er að láta til skarar skríða eða taka forystu í einhverju, fara af stað á undan hinum. Bjúgsverð er bogið sverð. VANGAVELTUR OG HUGLEIÐINGAR VIÐ 2. KAFLA Hvernig komust ræningjarnir í land? Sagt er að þeir hafi tekið enska duggu sem var við veiðar og fangað fiskimennina. Þeir slepptu þeim ekki fyrr en einn þeirra lýsti því hvernig hægt væri að komast í land í Heimaey án þess að nota höfnina. Ófriðurinn í Evrópu var þrjátíu ára stríðið svonefnda, sem stóð yfir 1618–1648. Þetta var röð styrjalda í Þýskalandi sem flestar þjóðir Evrópu drógust inn í. Danakonungur réðst með her inn í Þýskaland árið 1625 en var hrakinn til baka og missti þá Jótland. Þegar ræningjarnir komu til Íslands árið 1627 voru Danir því í miðju stríði og blússandi ófriður í Evrópu. 29

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=