28 „Bölvaðir, þeir hafa frekar viljað sökkva skipinu en láta ræningjana ná því á sitt vald,“ kallaði einn af vörðunum. Ég áttaði mig ekki á því hvað var að gerast fyrr en ég heyrði menn hrópa: „Sjóræningjar eru komnir í land!“ „Þeir sigldu suður með Heimaey og komu í land á tanganum við Brimurð!“ „Þeir æða um í þremur hópum og stærsti hópurinn stefnir hingað, örugglega hundrað menn vopnaðir bjúgsverðum og byssum!“ „Þeir eru þegar búnir að brjótast inn í Landakirkju og brjóta allt og bramla!“ „Þetta eru villidýr, þeir urra og gelta eins og úlfar!“ „Forðið ykkur! Hlaupið eins og þið mögulega getið!“ Ég tók umsvifalaust við mér og hljóp af stað. Við hvað líkja mennirnir sjóræningjunum? Hvað heldurðu að Egill sé að hugsa þegar hann hleypur af stað?
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=