Sjóræningjarnir eru komnir

27 Bagge kaupmaður tók af skarið tók af skarið og reið af stað með flokk manna, veifandi byssu. Ég var feginn að hann ætlaði að ganga úr skugga um að skipin hefðu í raun og veru siglt framhjá. Flokkurinn hvarf úr augsýn og vörðunum var sýnilega létt. Allt í einu heyrðist byssuskot. Skömmu síðar kom kaupmaðurinn ríðandi á harðaskeiði með skelfingarsvip á andlitinu. Hann hentist af hestinum, hljóp niður í höfnina og um borð í fiskibát með fólkið sitt á eftir sér og lét róa í ofboði frá landi. Skipstjórinn úr Krabbanum fleygði sér í bátinn til þeirra og þeir voru varla komnir út fyrir hafnarmynnið þegar Krabbinn fór að síga.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=