ekki skilað sér þetta árið. „Guði sé lof, þetta eru Danir,“ heyrði ég sagt en því var samstundis mótmælt. „Dönsku herskipin eru upptekin í ófriðnum í Evrópu.“ „Eru þetta ekki Englendingar?“ spurði einhver og ég vonaði innilega að það væri rétt. Kannski voru þetta ensku herskipin sem fylgdu oft ensku duggunum til veiða. Við hefðum samt ekki orðið rólegri þótt skipin væru með enskan eða danskan fána. Það vissu allir að sjóræningjar sigldu undir fölsku flaggi sigldu undir fölsku flaggi. Þegar þeir tóku Grindvíkingana þóttust þeir vera hvalveiðimenn. Sumir sögðu að þeir hefðu dregið upp danskan fána til að blekkja fólk á Bessastöðum. Verðirnir í Skansinum voru tortryggnir. Þeir örkuðu fram og til baka með músketturnar hlaðnar og við strákarnir vorum tilbúnir að hlaupa. En ekkert gerðist. Skipin virtust bara dóla í fjarska. Ef þetta væru sjóræningjar, myndu þeir þá ekki sigla hraðar og ryðjast í land? Þessi skip virtust ekkert vera að flýta sér. Danirnir í hópi varðanna höfðu séð svona stór herskip og voru orðnir sannfærðir um að þau væru komin til að verja okkur. 25
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=