Sjóræningjarnir eru komnir

24 Brátt streymdu konur og börn að Dönskuhúsunum en ekki komust þau öll inn í byggingarnar. Nokkur fjöldi varð að standa fyrir utan og þar voru settir menn á vörð. Mamma fékk að fara inn með Systu. Ég ætlaði að fylgja þeim en Bagge stöðvaði mig strangur og sendi mig aftur niður á Skansinn. Nú voru verðirnir í Skansinum vel vakandi. Enginn vissi hvaða skip þetta voru en þau myndu aldrei komast í höfn án þess að verðirnir yrðu varir við það. Um leið og þeir sæju skipin nálgast höfnina myndu þeir hrópa og þá áttum við sendisveinarnir að hlaupa að Dönskuhúsunum og vara verðina þar við. Þannig yrðu allir tilbúnir að verjast árás. Skipin tóku á sig mynd eftir því sem þau nálguðust. Skipið í miðjunni var geysistór galeiða. Ég hafði aldrei séð svona stórt skip. Danska kaupskipið Krabbinn, sem lá við akkeri í höfninni, virtist helmingi minna. En hverjir voru hér á ferð fyrst sjóræningjarnir voru farnir með fangana frá Grindavík? Danski kóngurinn sendi herskip til Íslands á hverju sumri til að verja landið en þau höfðu Hvers konar skip heldur þú að séu að koma?

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=