21 ÚTSKÝRINGAR Á ORÐUM: Hlóðir eru opið eldstæði sem matur er eldaður við. Vanari að munda penna en sverð – vanari að vinna við skriftir en að beita vopnum. Hjáleiga er lítið leiguland úr stærri jörð. Talið er að 18 bæir hafi verið í Heimaey en hver bær var með margar hjáleigur þar sem fátækari fjölskyldur bjuggu. Á stærri bæjum, eins og prestsetrinu Ofanleiti þar sem þessi saga hefst, bjó margt fólk, fjölskyldan, vinnufólk, heimilislausir fátæklingar og munaðarleysingjar. Músketta er byssa. Dugga er lítið fiskiskip með seglum. Orðið var aðallega notað um útlenska báta. Talið er að Englendingar hafi verið með 150 duggur við veiðar við Ísland á þessum tíma. Svikalogn – veður sem virðist vera gott en er undanfari storms.
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=