Gamla virkið Skansinn Skansinn var að hruni komið en samt voru settir menn á vörð þar til að fylgjast með höfninni. Þeir voru á verði allan daginn og við sendisveinarnir vorum tilbúnir að taka á sprett. En ekkert sást til skipaferða. Úti fyrir eyjunni voru bara litlar duggur duggur og fiskibátar, eins og venjulega. Bagge kaupmaður virtist ekki eins áhyggjufullur og um morguninn. Ef til vill væru sjóræningjaskipin farin frá Íslandi. „Þetta er svikalogn svikalogn,“ tautaði einn af vörðunum þegar menn fóru að tygja sig heim. Ég fékk ónotasting í magann en reyndi að leiða orð hans hjá mér. VANGAVELTUR OG HUGLEIÐINGAR VIÐ 2. KAFLA Dönskuhúsin. Þar var danski kaupmaðurinn með aðsetur, hann bjó þarna ásamt fjölskyldu sinni og vinnufólki en þarna var líka vöruhús. Danskir kaupmenn sigldu til Íslands með vörur á sumrin og dvöldu í kaupstöðum eins og Vestmannaeyjum. Engir aðrir máttu stunda verslun á þessum stöðum. Skansinn. Þar lét Danakonungur reisa virki eða varnargarð árið 1586 til að verja dönsku kaupmennina. Virkið var illa farið þegar ræningjarnir réðust í land 1627 en var endurreist eftir Tyrkjaránið. 20
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=