Hvað varð um Grindvíkingana? Ræningjarnir sigldu með þá til Sale í Marokkó. Þar var allt fólkið selt á þrælamarkaði, bæði Grindvíkingarnir og hollensku og dönsku skipverjarnir sem voru teknir á sama tíma. Aðeins örfáir Grindvíkingar komust heim aftur. Hver var Múrat Reis? Þótt talað sé um Tyrkjarán og að siglt hafi verið með Grindvíkinga til Marokkó var Múrat Reis hvorki Tyrki né arabi. Hann var Hollendingur sem hét Jan Janszoon og hafði lent í klóm sjóræningja en gerðist síðan sjálfur sjóræningjakafteinn. Menn eins og hann voru stríðsmenn, korsarar, sem hertóku aðallega spænsk skip, því Spánn hafði tekið helstu hafnirnar í Marokkó. Svo fóru korsararnir að sigla lengra, eins og til Íslands, og þá voru þeir ekki lengur í stríði heldur ránsferð. Af hverju ætluðu ræningjarnir að ráðast á Bessastaði? Þar bjó danski hirðstjórinn sem safnaði sköttum fyrir Danakonung. Þeir bjuggust við að finna fjármuni. Hvað var Tyrkjaveldi? Tyrkir réðu yfir gríðarstóru landsvæði á þessum tíma, sem teygði sig inn í þrjár heimsálfur, Asíu, Afríku og Evrópu, eins og sést á myndinni á blaðsíðu 4. Æðsti maður Tyrkjaveldis var kallaður soldán en orðið hefur sambærilega merkingu og konungur. Hvað var Barbaríið? Þetta orð var notað um lönd Tyrkjaveldis og Marokkó í Norður-Afríku, það er strandlengjuna að Miðjarðarhafinu frá Egyptalandi og yfir í Atlantshafið. Í dag eru þetta Marokkó, Alsír, Túnis og Líbía. Orðið Barbarí er dregið af orðinu Berbar, en það voru íbúar á þessu svæði kallaðir. Þessi orð eru þó heldur niðrandi og þess vegna er líkað notað orðið Maghreb um þetta svæði. Það þýðir „Sólarlagslönd“. VANGAVELTUR OG HUGLEIÐINGAR VIÐ 1. KAFLA 15
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=