Sjóræningjarnir eru komnir

14 ÚTSKÝRINGAR Á ORÐUM: Ribbaldi er ofbeldismaður. Þetta orð kemur fyrir í Reisubók séra Ólafs Egilssonar. Bessastaðir voru aðsetur hirðstjórans sem var fulltrúi Danakonungs á Íslandi. Veistu hver býr núna á Bessastöðum? Tyrkjasoldán var einvaldur (réð öllu) í Tyrkjaveldi. Jónsmessa er 24. júní. Munaðarlaus börn eiga enga foreldra. Að skjóta skjólshúsi yfir einhvern er að veita honum húsaskjól. Að feta í fótspor einhvers er að gera það sama og sá eða sú sem rætt er um. Að sitja yfir ánum er að passa kindurnar. Guðs lömbin er orðalag úr Biblíunni, lömb Guðs eru mannfólkið. Tvílemba er ær með tveimur lömbum.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=