10 „Hann heitir Múrat Reis sem stýrði ræningjaflokknum,“ sagði pabbi. „Menn segja að hann vinni fyrir Tyrkjasoldán Tyrkjasoldán svo að líklega ætla þeir að sigla með fólkið suður í Barbaríið og selja það í þrældóm.“ Mamma kæfði óp. Mig langaði mest að æpa líka en ég þorði ekki að gera vart við mig. Pabbi gat orðið mjög reiður ef ég óhlýðnaðist og núna átti ég að vera sofandi. En hvernig átti ég að geta sofið þegar þau voru að tala um svona skelfileg tíðindi? „Hvenær gerðist þetta? spurði mamma. „Skömmu fyrir Jónsmessu Jónsmessu,“ svaraði pabbi, „en fréttirnar bárust út í Eyjar í dag. Ég heyrði þetta hjá kaupmanninum þegar menn hans komu úr sendiferð upp á land. Hann er strax farinn að huga að vörnum.“ „En það eru næstum tvær vikur síðan,“ sagði mamma, „heldurðu að þeir séu ekki farnir frá landinu?“ „Mennirnir halda og vona en Guð ræður,“ sagði pabbi. Ég vildi að hann talaði ekki alltaf eins og prestur. Ég vildi að hann segði frekar hvort við værum í Hvað merkir það að vera seldur í þrældóm? Hvers vegna er mamma skelkuð?
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=