9 Pabbi hélt áfram: „Þeir ætluðu líka að ráðast að Bessastöðum, þar höfðu menn frétt af árásinni og voru viðbúnir. Hirðstjórinn var með herskip fyrir utan og menn höfðu hlaðið virki og dregið fram fallbyssur. Ribbaldarnir byrjuðu að skjóta úr fallbyssum á skipum sínum, þeir voru mun betur vopnaðir. Enginn veit hvað hefði gerst ef eitt skipa þeirra hefði ekki strandað í Skerjafirði. Þeir fluttu fólk og varning milli skipa til að koma því á flot aftur og sigldu svo á braut.“ „Hver gerir svona lagað?“ spurði mamma klemmdri röddu.
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=