Sjóræningjarnir eru komnir

Agli bregður þegar hann heyrir af sjóræningjum við Íslandsstrendur. Sagt er að þeir æði um vopnaðir og ræni fólki til að selja á þrælamarkaði í Norður-Afríku. Íbúar Vestmannaeyja búa sig undir hið versta og Egill fær mikilvægt hlutverk. En hvernig á ellefu ára strákur að ráða við grimma ribbalda þegar hann getur varla ráðið við eina freka kind? Hvað verður um hann ef sjóræningjarnir ná honum? Sjóræningjarnir koma lýsir Tyrkjaráninu 1627 frá sjónarhorni barns. Höfundur texta er Brynhildur Þórarinsdóttir, barnabókahöfundur og dósent í íslensku við kennaradeild H.A. Myndhöfundar eru Sigmundur Breiðfjörð og Bergrún Íris Sævarsdóttir. 40765

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=