102 3. Geturðu sett þig í spor Egils? Ímyndaðu þér að fundist hafi rifið bréf sem Egill skrifaði föður sínum. Aðeins fyrstu línurnar eru varðveittar. Hvað heldur þú að Egill hafi skrifað? Kláraðu bréfið til föður hans og nýttu þér viðbótarefnið hér í bókarlok. Ástkæri faðir minn, Ég skrifa þér úr Barbaríinu með von um að þér hafi tekist ætlunarverkið, að fá konunginn til að borga lausnargjald fyrir íslensku fangana. Ég treysti því að elskuleg móðir mín og systkini mín séu með þér í Vestmannaeyjum. Ég hef gefið upp alla von um að sameinast ykkur. Nú er ég kominn til Túnis, þar sem ...
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=