Sjóræningjarnir eru komnir

101 er samt munur á þessum flokkum, víkingarnir herjuðu í smærri hópum en menn Tyrkjasoldáns (korsararnir) voru atvinnuhermenn með ríkisvald á bak við sig. Það breytir því ekki að báðir hópar skildu eftir sig mikinn skaða, bæði sorg og eyðileggingu. Viltu lesa meira? 1. 17. öld einkenndist af miklum trúarhita. Fólk óttaðist guð og trúði því að hann refsaði grimmilega fyrir syndir. Þess vegna sögðu sumir að Tyrkjaránið væri refsing guðs fyrir syndir fólks. Bókin Brennd á báli í flokknum Sögulandið gerist á 17. öld, eins og þessi bók. Þar getur þú lesið hvernig ótti við galdur heltók fólk með skelfilegum afleiðingum. 2. Spennusagan Ránið eftir Gunnhildi Hrólfsdóttur segir frá nútímastelpunni Kötlu sem ætlar að vera á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum með vinkonu sinni en flyst aftur til ársins 1627 og lendir í Tyrkjaráninu. Bókin gæti verið til á skólasafninu þínu.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=