100 Þrælar 1. Þrælamarkaðir voru víða á 17. öld, ekki bara í NorðurAfríku heldur líka í borgum eins og Marseille í Frakklandi og Livorno á Ítalíu og á Möltu. Þar sem þrælasalan var mest höfðu borgirnar miklar tekjur vegna þess að viðskiptin voru lögleg og þrælasalarnir borguðu skatt. 2. Á landnámsöld var fjöldi þræla á Íslandi. Sumum höfðu víkingarnir sem settust hér að rænt á Bretlandseyjum eða Írlandi. Þekktust er ambáttin Melkorka í Laxdælu. Hún var keypt á þrælamarkaði í Svíþjóð en reyndist vera kóngsdóttir frá Írlandi. Þrælahald lagðist smám saman af á Íslandi og virðist hafa verið hætt á 12. öld en það var þó ekki horfið úr lögum fyrr en í lok 13. aldar. 3. Þrælahald og þrælasala er algjörlega bannað í dag. Samt er mansal talið vaxandi vandamál í heiminum. Kynntu þér hvað felst í hugtakinu mansal og hvernig það birtist. 4. Í fornum ritum eru dæmi um að orðið víkingur sé notað um alla sjóræningja, bæði norræna menn á landnámsöld og menn Tyrkjasoldáns á 17. öld. Það
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=