Sjóræningjarnir eru komnir

99 2. Reisubókin er um Tyrkjaránið, um siglinguna á þrælaskipinu til Norður-Afríku og um dvöl Ólafs þar. En hún er líka um ferðalag Ólafs frá Algeirsborg til Kaupmannahafnar að hitta kónginn. Þá sigldi hann yfir Miðjarðarhafið til Sardiníu og áfram til Ítalíu, ferðaðist norður yfir Ítalíu til Suður-Frakklands, þaðan sigldi hann til Hollands og síðan til Danmerkur. Þetta var margra mánaða ferðalag og Ólafur átti engan pening og þurfti að sníkja mat, gistingu og far. Geturðu fundið þessa leið á korti og ímyndað þér hvernig væri að komast þetta án farartækja? Ólafur hafði ekki einu sinni hest. 3. Hvernig heldurðu að Ólafi hafi liðið þegar hann komst loks til Danakonungs og heyrði að konungurinn hefði ekki efni á því að borga lausnargjald fyrir íslensku fangana? Skrifaðu samtal þeirra eða búðu til leikþátt með félögum þínum. Konungurinn hét Kristján fjórði. 4. Fjögur bréf sem skrifuð voru af íslenskum þrælum í Barbaríinu hafa varðveist. Eitt bréfið skrifaði Jón Jónsson frá Grindavík til foreldra sinna árið 1630. Annað bréf skrifaði Guttormur Hallsson frá Búlandsnesi í Berufirði 1631. Bréfið var ætlað börnum hans og vinum. Veldu annan manninn og skrifaðu bréf í hans nafni.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=