Heimildir um Tyrkjaránið 1. Reisubók séra Ólafs Egilssonar er aðalheimildin um Tyrkjaránið. Ólafur kom heim ári eftir að honum var rænt og byrjaði strax að skrifa bókina. Hann vildi skrifa hana meðan hann myndi vel eftir öllu sem gerðist. Ólafur handskrifaði bókina og síðan gekk hún á milli manna og var afrituð hvað eftir annað. Þannig lásu Íslendingar sögu hans í næstum þrjú hundruð ár þangað til hún var prentuð. Hún var að vísu prentuð á dönsku á 18. öld en við vitum ekki hve margir lásu hana þannig. Þetta er kápumyndin á bókinni, textinn er á dönsku og letrið erfitt. Getur þú gert betri kápu fyrir bókina og skrifað baksíðutexta á hana? 98
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=