8 1. KAFLI HRÆÐILEG TÍÐINDI „Ég hef þungar áhyggjur af þessu, hér eru engar varnir.“ Þetta var röddin hans pabba. Hann talaði lágt við mömmu svo að ég skildi að aðrir í baðstofunni máttu ekki heyra. Ég hnipraði mig saman í bólinu og lét sem ég svæfi því ég vildi ekki að þau vissu að ég væri að hlusta. Mamma hljómaði líka áhyggjufull en kannski var hún bara þreytt. Hún var alltaf þreytt því barnið var alveg að fara að fæðast. „Hvað þurfum við að óttast?“ spurði hún og pabbi svaraði: „Við þurfum að óttast það versta. Þessir ribbaldar ribbaldar ruddust í land í Grindavík, drápu tvo menn og tóku fimmtán Grindvíkinga til fanga. Þeir rændu líka öllum þeim verðmætum sem þeir fundu í þessum fátæka stað. Síðan hertóku þeir tvö skip og fönguðu annan eins fjölda af dönskum og hollenskum skipverjum.“ „Guð minn góður,“ hvíslaði mamma. Orð til skoðunar: ribbaldar Bessastaðir Tyrkjasoldán Barbaríið Jónsmessa munaðarlaus að skjóta skjólshúsi feta í fótspor einhvers að sitja yfir ánum guðs lömb tvílemba Hvers vegna hvíslar pabbi hans?
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=