Sjálfsagðir hlutir

3 SJÁLFSAGÐIR HLUTIR – HÖNNUN HÖNNUN Í NÁNASTA UMHVERFI OKKAR Nær allt sem við snertum hefur verið hannað á einhvern hátt. Marga hluti í umhverfi okkar lítum við á sem sjálfsagða í daglegu lífi án þess að gefa því sérstakan gaum. Augnlinsur, tannstönglar, klósett og bréfaklemmur eru dæmi um hluti sem gegna allir á sinn hátt mikilvægu hlutverki og hafa jafnvel sannað gildi sitt sem „klassískir“ á þann hátt að endurnýjun eða endurhönnun virðist óþörf. Tækninýjungar, forvitni og útsjónarsemi einstaklinga hafa oftar en ekki haldist í hendur við að skapa eitthvað nýtt og óvenjulegt úr ýmsum hráefnum. Hlutverk hönnuða er oft og tíðum að einfalda líf okkar. Þeir endurbæta og þróa eldri hönnun með það að leiðarljósi að gera hana betri. Hönn- uðir hanna verkfærin sem hjálpa okkur að leysa verkefni daglegs lífs. Gripirnir í þessari bók eiga sér sögu sem kemur á óvart, þar sem tilviljun og hugmyndaauðgi eiga stóran þátt í að hluturinn verður til. Hönnun snýst ekki einungis um að leysa fyrirliggjandi vanda, stundum leysir hún úr vanda sem við vissum jafnvel ekki að væri til staðar. Tilgangur með þessari rafbók er að vekja athygli á þeirri hönnun sem er í okkar nánasta umhverfi. Í skólastofunni eru dæmi um hluti sem teljast til hönnunarklassíkur en láta lítið yfir sér. Tillögur að verkefnum og vanga- veltum fylgja hverri opnu. Það er í valdi hvers og eins hvort öll verkefnin eru unnin. Best er að lesa efnið í gegn áður en hafist er handa.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=