Sjálfbærni - Rit um grunnþætti menntunar

SJÁLFBÆRNI 60 eða sleða þurfa að hugsa vel um hvað þeir taka með sér, þeir þurfa að taka allt sem skiptir máli en sleppa hinu. Mjög lærdómsríkt er að fara í dagsgönguferð með nemendur og kenna þeim að skipuleggja slíka ferð. Þinjóð og börnin hennar (bls. 39). Dæmisagan í Æskunni lesin og kennari kynnir sér umfjöllun um hana í næsta tölublaði á eftir. Sagan síðan rædd í pörum eða hópum. Hver var Þinjóð, Nækti, börnin? Tákna þau eitthvað annað en það sem segir í sögunni? Hvað? Hvað kennir þessi saga? http://timarit.is/view_page_init.jsp?pubId=383&lang=is, 6. tbl. 1993, bls. 22– 23 og 7.tbl. 1993, bls. 26–27. Samábyrgð og kynning (bls. 40). Tvö verkefni úr Grænfánaskólum um leiðir til að virkja nærsamfélag skóla. Auður djúpúðga í nútímanum (bls. 41). Hugleiðing um umhverfisvitund. Sá sem er með umhverfisvitund veit hvað er við hæfi í umhverfi sínu, er kurteis og tekur tillit. Til að vita hvað er við hæfi þarf að þekkja umhverfi sitt. Jafnvel gáfaðasta fólk þarf að kynnast umhverfi sínu til að vita hvernig á að haga sér í því. Hugarflug og umræður (bls. 45). Spurningar sem vert er að velta fyrir sér til dæmis á kennarafundi þegar verið er að hefja eða skerpa menntun skólans til sjálfbærni. Úr Grænfánaskýrslu Hálsakots (bls. 48). Á heimasíðum Grænfánaskóla má oft finna skýrslur og verkefni. Kostnaður náttúrunnar (bls. 50). Verkefni sem víða er til og í ýmsum útgáfum en alltaf jafn þarft, þverfaglegt og snertir á fjölmörgum viðfangsefnum. Framtíðin – umræður (bls. 54). Oft er erfitt að skipuleggja næstu skref til umhverfisbóta. Stundum vilja skólar færast of mikið í fang, taka of stór skref í einu, og þá er hætta á uppgjöf. Stundum festast skólar í sama fari, t.d. í flokkun

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=