Sjálfbærni - Rit um grunnþætti menntunar

SJÁLFBÆRNI 58 Námsefni frá UNESCO (bls. 17). Jarðarsáttmálinn hefur verið þýddur á íslensku: http://www.simnet.is/meistarar/Library/Earth_Charter_isl_FINAL.pdf og mikil umfjöllun er um menntun til sjálfbærni á heimasíðu UNESCO: http:// www.unesco.org/new/en/education/themes/leading-the-international-agenda/ education-for-sustainable-development/ ) og ógrynni efnis og dæma um verkefni víðs vegar úr veröldinni á síðunni http://www.desd.org/. Eplið ≈ Jörðin – og melóna (bls. 18). Þetta eru tvö verkefni þar sem Jörðinni er líkt við epli. Annars vegar er eplið borið saman við mun stærri melónu og á þá melónan að tákna samanlagðan massa allra lífvera sem hafa verið á Jörðinni frá upphafi – þær mynda miklu stærri kúlu en Jörðin er sjálf. Forsenda þess að svo getur verið eru hringrásir efnisins, að lífríkið er alltaf að nota sama efnið aftur og aftur. Með það lögmál í huga verður hitt verkefnið ekki eins ógnvænlegt. Þar er sýnt, með því að skera niður epli, hvað í raun lítill hluti af yfirborði jarðar er ræktanlegur. Sá litli biti þarf sífellt að brauðfæða fleira fólk auk þess að viðhalda vistkerfum og öðrum lífverum jarðar. Námsefni um hringrásir (bls. 22). Hér er bent á kennsluleiðbeiningar við námsefnið Komdu og skoðaðu hringrásir (http://vefir.nams.is/komdu/hringrasir/ hring_frames.htm) . Þótt það sé ætlað yngsta stigi eru þar verkefni og hugmyndir sem nota má á eldri skólastigum. Lífsvefurinn : http://vefir.nams.is/komdu/hringrasir/leikjahug_hring/ lifsvefurinn.html. Fæðupíramídinn : http://vefir.nams.is/komdu/hringrasir/leikjahug_hring/ faedupiramidinn.html. Nánasta umhverfi okkar (bls. 23). „Áttastjarna á skólalóð“. http://vefir.nams.is/komdu/landakort/vettvangur_landakort/attaros.html. Útinám (bls. 24). Umfjöllun um útinám og dæmi um verkefni. Í kennsluleið­ beiningum með mörgum Komdu og skoðaðu ... bókunum eru hugmyndir að leikjum og útiverkefnum.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=