Sjálfbærni - Rit um grunnþætti menntunar

Grunnþættir menntunar 57 Samantekt, heimildir og ítarefni Kennsluverkefni – samantekt Þetta rit Sjálfbærni, grunnþáttur í menntun á öllum skólastigum er fyrst og fremst hugsað til þess að skerpa skilning fólks á þeirri hugsun og stefnu sem felst í sjálfbærni, hver uppruni þeirrar stefnu sé og hve mikilvæg hún er. Hér er lítið rými fyrir markvissar kennsluleiðbeiningar og verkefni. Þó eru á nokkrum stöðum nefnd verkefni, þeim lýst, eða hægt að útfæra þau út frá textanum. Sama eða svipuð kveikja getur nýst til kennslu á flestum skólastigum þótt úrvinnslan verði ólík og taki mið af aldri og getu nemenda. Verkefnin eru dreifð um ritið og til hagræðis eru þau listuð hér að neðan. Skötutjörn (bls. 6). Sagan sögð eða lesin sem kveikja að umræðum. Hvað kennir sagan? Á hún enn við? Silungurinn í gjánni getur táknað fleira en fæðu. Af hverju mátti ekki veiða of mikið úr tjörninni? Hafa fyrri kynslóðir spillt einhverju eða eytt sem við vildum að væri enn heilt eða til? (Útrýming vistkerfa eða tegunda, geirfuglinn þótti t.d. góður til átu.) Getur verið að fólk sé enn svolítið eins og presturinn á Þingvöllum? Að hvaða leyti? Hugtakið um sjálfbæra þróun kynnt. Jörð – jörð (bls. 8.) Nemendur velta fyrir sér stafsetningu orðsins, hvenær það er skrifað með j eða J, og æfa sig í að skrifa setningar með ólíkri merkingu orðsins eða búa slíkar setningar til. Við höfum val (bls. 11). Oft eru unnin verkefni um geitunga í skólum. Þeir eru dæmi um félagsskordýr. Sum félagsskordýr erlendis, svo sem maurar, hafa þó enn flóknara samfélag en geitungarnir. Þegar unnin eru verkefni um slík dýr má velta fyrir sér muninum á mönnum og dýrum hvað þetta varðar, að menn hafa að mestu leyti val um hegðun sína sem dýr hafa ekki. Það skiptir máli hvað við veljum að gera. 4

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=