Sjálfbærni - Rit um grunnþætti menntunar

Grunnþættir menntunar 53 Enn skal það áréttað að menntun til sjálfbærni er ekki eitthvað alveg nýtt og framandi heldur eðlileg þróun í menntun sem hefur verið sinnt á heimilum og skólum lengi og hefur heitið ýmsum nöfnum eins og átthagafræði eða umhverfismennt. Með nýrri þekkingu og í síbreytilegum heimi breytast áherslur í menntun, aðferðum og markmiðum í þessari námsgrein rétt eins og öðrum, svo sem í læsi, sköpun og samfélagsfræði. Sú breyting sem nú hefur orðið er að menntun á þessu sviði hefur fengið meira vægi en áður og kennarar sem lítt hafa sinnt henni hingað til þurfa nú að taka tillit til þess að sjálfbærni er ein af grunnstoðum aðalnámskrár. Skólar sem eru að feta sín fyrstu skref í þá átt að taka mið af sjálfbærni í kennslu, skipulagi og stjórnun geta hins vegar nýtt sér að fjölmargir eru komnir vel á veg á þessari braut. Hér sem annars staðar er óþarfi að margir séu að finna upp hjólið heldur er hægt að læra og tileinka sér reynslu annarra eins og þeirra sem lengi hafa unnið undir merkjum verkefnisins Skólar á grænni grein . Rétt eins og vart er hægt að hugsa sér að ungt fólk læri um lýðræði og tileinki sér lýðræði nema þar sem lýðræði ríkir þá þjónar litlum tilgangi að predika um sjálfbærni nema að hugur og framkvæmd fylgi máli. Það er ögrandi verkefni að leitast við að þróa skóla til sjálfbærni í ósjálfbærri veröld og kannski vex fólki Sér kennurum fyrir fræðslu og úrræðum til stuðnings verkefninu annaðhvort utanaðkomandi ráðgjöf eða að nýttur er mannauður skólans. Er ötull við að innleiða menntun til sjálfbærni í skólastofu og bekkjarstarfi, s.s. heildræna, þverfaglega nálgun, raunveruleg viðfangsefni, gagnrýna umræðu um gildi og viðmið, sameiginlega ábyrgð og þátttöku. Miðlun reynslu Er fyrirmynd annarra í að takast á við markmið menntunar til sjálfbærni. Hvetur aðra til þátttöku í menntun til sjálfbærni og miðlar af reynslu sinni. Er fulltrúi tiltekinnar hugmyndafræði og talsmaður hennar úti í samfélaginu. Er í forystu um tiltekna hugmyndafræði og er talsmaður hennar innan og utan skólasamfélagsins.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=