Sjálfbærni - Rit um grunnþætti menntunar

Grunnþættir menntunar 47 of snemmt eða of seint að hafa áhrif á viðhorf fólks til náttúru til að styrkja virðingu fólks fyrir henni og þá tilfinningu að hún skipti máli. Það getur þó tekið tíma, ekki síst ef um fullorðna einstaklinga er að ræða. Flestir sem hafa farið með fólk um náttúru og umhverfi, bæði börn og fullorðna, þekkja þá tilfinningu þegar eitthvað hrífur fólk og eitthvað gerist sem breytir afstöðu þess, jafnvel svo að það verði aldrei samt aftur. 35 Þá er gaman. Menntun til sjálfbærni þarf á að halda fjölmörgum og fjölbreytilegum kennsluaðferðum til að árangur náist. Útinám er ein mikilvægasta leiðin til kennslu. Markmið þess er að opna augu nemenda fyrir umhverfi sínu og náttúru og hjálpa þeim við að uppgötva, skilja og virða. Úti lærir fólk líka ýmislegt sem aldrei verður numið innan húss af bók og útivistin bætir auk þess heilsu bæði líkamlega og andlega. Að ímynda sér eða lifa sig inn í aðstæður vekur einnig oft ýmiss konar hughrif og spurningar. Þá eru ákveðnar aðstæður kynntar fyrir nemendum, aðstæður sem eru hugsanlega þeim framandi en raunhæfar fyrir aðra svo sem jafnaldra þeirra í öðrum löndum eða annað fólk í eigin samfélagi. Einnig væri gagnlegt að ímynda sér hvernig þjóðfélagið gæti verið með breyttu verðmætamati, þar sem við í öllum okkar athöfnum tækjum tillit til sjálfbærni. Hvernig væri dagurinn okkar þá, hvað borðuðum við, úr hverju væru fötin okkar, hvernig ferðuðumst við, hvað þarf leysast hugsanir úr læðingi á dularfullan hátt. Finna má rigninguna á andlitum og hugsa um langa ferð hennar og mörg form, í sjó, lofti og jörð. Jafnvel í borgum eru svæði, kannski garðar eða golfvellir, þar sem hægt er að fylgjast með óútskýrðu fari fuglanna og breytileika árstíðanna. Og með barni má velta vöngum yfir leyndardómum vaxandi fræs jafnvel þótt því hafi aðeins verið plantað í moldarpott í eldhúsglugganum. Sá sem kannar náttúruna með barni sínu þarf fyrst og fremst að vera móttækilegur fyrir því sem er allt í kring um hann. Hann þarf að læra aftur að nota augun, eyrun, nefið og fingurgómana, að opna aftur ónotaðar rásir frá skynjun til hughrifa. 34 Rachel Carson

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=