Sjálfbærni - Rit um grunnþætti menntunar

SJÁLFBÆRNI 46 Að undrast með börnum Veröld barnsins er fersk og fögur, undursamleg og spennandi. Ógæfa okkar felst í því að glöggskyggni flestra okkar, og innsýn í hvað er raunverulega fagurt og hrífandi, dofnar eða jafnvel hverfur áður en við verðum fullorðin. Ef ég gæti haft áhrif á heilladísirnar, sem sögurnar segja að komi til barnanna þegar þeim er gefið nafn, þá bæði ég þær að gefa hverju barni heims þann eiginleika að kunna að undrast og dást að og hann í svo ríkum mæli að hann entist alla ævi. Sá eiginleiki veitti óbrigðult mótvægi við leiða og vonbrigðum seinni ára og andlausu annríki í gerviveröld þar sem tengsl við eigin orkulindir eru rofin. Börnum er meðfætt að undrast. Til að halda þeim eiginleika, án gjafa heilladísa, verður barnið að njóta félagsskapar að minnsta kosti einnar fullorðinnar manneskju sem getur undrast með því, og fundið á ný gleðina, eftirvæntinguna og leyndardómana sem búa í veröld okkar. Foreldrar finna oft til vanmáttar þegar þeir standa annars vegar frammi fyrir ákafa og næmni barna sinna og hins vegar veröld sem er flókin í eðli sínu og með lífríki svo fjölbreyttu og framandi að það virðist vonlaust að átta sig á því. Í uppgjöf útskýra þeir: „Hvernig á ég að geta kennt barninu mínu eitthvað um náttúruna, ég þekki ekki einu sinni nokkurn fugl.“ Ég trúi því staðfastlega að öllum börnum og öllum foreldrum sem vilja leiðbeina þeim, sé miklu mikilvægara að skynja en kunna. Ef staðreyndir eru fræ sem síðar þroskast í þekkingu og visku þá eru hughrif og tilfinningar sá frjói jarðvegur sem fræin þurfa til vaxtar. Og jarðveginn þarf að undirbúa snemma í æsku. Þegar tilfinningarnar hafa vaknað – skynjun fyrir því fagra, eftirvæntingin eftir hinu nýja og óþekkta, samúð, meðaumkun, aðdáun eða ást – þá leitum við þekkingar um fyrirbærið sem vakti hughrifin. Um leið og við höfum öðlast hana skiptir hún okkur máli til frambúðar. Það er mikilvægara að vekja áhuga barnsins á þekkingunni heldur en að bera því staðreyndir sem það er ekki tilbúið að taka við. Foreldrar geta veitt barni sínu mikið jafnvel þótt þeim finnist að þeir þekki náttúruna lítið. Hvar sem er, og hverjar sem aðstæður eru, þá má horfa upp í himininn, á fegurð dögunar og kvöldhúms, á hreyfingar skýjanna, á stjörnur næturinnar. Hægt er að hlusta á vindinn, hvort hann þýtur hávær í trjánum eða syngur margraddaðan kór við þakskegg eða horn hússins og þegar hlustað er

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=