Sjálfbærni - Rit um grunnþætti menntunar

Grunnþættir menntunar 39 Þinjóð og börnin hennar – dæmisaga Á árunum 1993–1995 voru pistlar um umhverfismál með fyrirsögninni Lágfóta landvörður í barnablaðinu Æskunni . 26 Enn er full þörf á að taka fyrir þau málefni sem þar voru rædd og dæmisagan um Þinjóðu og börnin hennar getur vel komið af stað umræðum í bekk. Útdráttur: Þinjóð bjó í góðu yfirlæti með börnum sínum og ræktaði garðinn sinn. Í slæmu árferði neyddist hún til að taka af útsæði næsta árs til að brauðfæða sig og börnin. Eitt sinn, er illa leit út hjá Þinjóðu og börnum hennar, kom til þeirra maður sem hét Nækti. Hann útvegaði þeim mat og ýmiss konar góss og gæði. Þannig gekk það áfram ár eftir ár. Þinjóð sá að Nækti tók ýmislegt í staðinn fyrir sína þjónustu, svo sem hreina loftið og vatnið og sumir fuglarnir í garðinum hennar voru hættir að syngja. Þinjóð átti nú venjulega nægilegt útsæði og hefði því getað verið minna háð Nækta en hún var orðin, en henni fannst lífið nú svo miklu þægilegra en það hafði verið áður en hann kom. Sum barna Þinjóðar voru tortryggin. Þau sögðu að Nækti væri ekki sá sem hann þættist vera. Hann væri ekki maður heldur tröll sem héti Tækni. Rétt eins og gömlu, íslensku tröllin þyrfti að umgangast hann af varkárni. Tröll gætu verið hættuleg, eyðilagt og drepið, en margar sögur væru líka af því að tröll væru hjálpsöm og launuðu fyrir sig ef þeim væri sýnd virðing. (Tækni –nækTi, Þinjóð – Þjóðin.) Sagan um Þinjóðu Sjá slóð í samantekt kennsluverkefna á bls. 60.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=