Sjálfbærni - Rit um grunnþætti menntunar

Grunnþættir menntunar 31 borgar meira í vexti en hann fær, um 10% fólks borgar álíka mikið í vexti og það fær en 10% fólks fær í gróða nær allt sem 80% þjóðarinnar hefur tapað á vöxtunum. Peningakerfið sópar því stöðugt peningum frá þeim sem hafa lítið til hinna sem eiga mikið og sífellt meiri peningar lenda í sífellt færri höndum. Þetta ríka fólk á mikið fé sem flæðir um heiminn þangað sem gróða er von, t.d. í hlutabréfaviðskiptum, og berst sumt mikið á. Oft eru háar tölur á hlutabréfum fyrst og fremst tölur í tölvu og lítil raunveruleg verðmæti á bak við þær. Svo að kerfið er fallvalt og getur hrunið eins og dæmin sanna. 20 Hagkerfi sem gerir sífellt færra og færra fólk ríkara og ríkara og fleira og fleira fólk fátækt er ógn við lýðræði og mannréttindi. Ríkidæminu geta fylgt mikil völd sem ekki lúta lýðræði nema að vissu marki en geta þó haft veruleg áhrif á þjóðfélög. Auðmenn eiga sumir fjölmiðla og hafa með þeim áhrif og þeir geta lagt mikið fé í kosningabaráttu fyrir sig og sína. Sumir eiga stórfyrirtæki og hafa lítinn áhuga á að framkvæmdir þeirra og framleiðsla sé heft t.d. með friðun lands eða reglum um mengunarvarnir og geta jafnvel leitast við að hafa sitt fram í krafti auðs og valda. Þetta er ójafn leikur sem getur farið illa ef samtakamætti og lýðræði er ekki beitt til varnar samfélagi og náttúru. Skekkt verðmætamat hagkerfisins er náttúrunni dýrt. Ef verð á vöru lækkar hefur það áhrif á hagvöxt en ef gæði náttúrunnar minnka kemur það hvergi fram í hagskýrslum. Hagfræðin greinir ekki á milli nýtingar sem styrkir auðlind eða hinnar sem eyðileggur hana. Þjóðir sem ofnýta auðlindir sínar koma hagfræðilega Skýrsla Oxfam Í janúar 2013 birtu alþjóðlegu hjálparsamtökin Oxfam skýrslu sína þar sem fram kom að árstekjur hundrað ríkustu manna heims væru fjórfalt hærri en sú upphæð sem þyrfti til að útrýma fátækt í heiminum. Eitt prósent þeirra Jarðarbúa sem ríkastir væru hefðu 60% hærri tekjur en þeir höfðu 20 árum fyrr. Ójöfnuður hafði því aukist mikið. Í skýrslunni segir að gagnstætt því sem haldið hefur verið fram sé ekkert sem bendi til þess að þeir fátæku njóti góðs af velgengni hinna ríku. Þvert á móti þá dragi slík auðsöfnun úr hagvexti og skaði samfélagið sé til lengri tíma litið. Kerfisbundin mismunun geri þeim ríkustu kleift að margfalda auðæfi sín og sleppa við að greiða skatta. 19

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=