Sjálfbærni - Rit um grunnþætti menntunar

Grunnþættir menntunar 21 Fari hann til Kína heldur hann áfram að skoða skiltin sem á vegi hans verða án þess þó að vera læs á þau. Kannski eru þetta aðvörunarskilti en af því að hann skilur þau ekki missir hann af upplýsingum og gæti því verið í hættu, jafnvel lífsháska. Rittákn tónlistar eru alþjóðlegri en hins talaða máls. Víða er í hljómsveitum fólk frá öllum heimshornum. Hljómsveitarmeðlimir tala ekki sama tungumálið og skilja hver annan illa í kaffihléum en þegar þeir setjast með hljóðfærin sín skilja allir nóturnar, lesa þær á sama hátt og spila sama lagið. Frægir stórsöngvarar og einleikarar ferðast á milli landa og syngja sömu aríurnar eða spila sömu konsertana við undirleik ólíkra hljómsveita, á Íslandi og Ítalíu, í Ameríku og Japan. Söngurinn er alls staðar sá sami og fólk af öllum þjóðernum upplifir og nýtur, rétt eins og allt þetta fólk nýtur yls frá sömu sól , horfir á sama tungl og stjörnur og andar að sér sama loftinu og drekkur sama vatnið. Til að læra að lesa náttúru og samfélag þarf fólk að upplifa, skoða og skilja umhverfi sitt. Ólæsi á það mikla sköpunarverk er lífshættulegt. Forsenda þess að fólk vilji vernda náttúruna er að það kynnist henni. Sífellt aukin tæknivæðing og stækkun borga hefur rofið tengsl manns og náttúru. Fólk skynjar ekki lengur hve háð það er náttúrunni, né sér það þegar illa er um náttúruna gengið og henni jafnvel misþyrmt. Slíkt ólæsi er ekki bara hættulegt heldur tekur líka frá fólki lífsfyllingu og gleði. Þegar kennarar eru hvattir til að fara út í náttúru og samfélag með nemendur sína til að þeir kynnist því umhverfi sem þeir eru hluti af, og læri að lesa það, svara þeir gjarnan á þann hátt að þeir treysti sér ekki til þess því að þeir sjálfir þekki það ekki nógu vel, viti til dæmis ekki nöfn Tungumál náttúrufræðinnar Náttúrfræðin hefur sitt eigið tungumál og því mikilvægt að hafa það í huga þegar textar hennar eru lesnir. Nemendur þurfa að takast á við ný hugtök sem eru þeim framandi. Að nemandi nái tökum á tungumáli náttúrfræðanna eykur líkurnar á að hann fái bæði áhuga og vilja til að afla sér upplýsinga um umhverfi sitt og náttúru. Að efla læsi á fjölbreytta náttúrfræðitexta og fara út og skoða fjölbreytt umhverfi og náttúru eru samverkandi leiðir í að fólk læri að skilja, upplifa og verða læst á umhverfi sitt. Hafdís Ragnarsdóttir, grunnskólakennari og umhverfisfræðingur

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=