Sjálfbærni - Rit um grunnþætti menntunar

SJÁLFBÆRNI 18 Eplið ≈ Jörðin – og melóna Sýnikennsla, spurningar og umræða: Kennari er með epli og melónu og er hún mun stærri en eplið. Eða hann teiknar tvo misstóra hringi á töfluna, þvermál stærri hringsins má vera tvisvar til þrisvar sinnum lengra en þess minni. 12 Eplið (eða minni hringurinn) táknar Jörðina. Jörðin er gerð úr 103 frumefnum. Af þeim finnast 24 frumefni í lífverum. Lífverur eru aðeins í örþunnu lagi yst á Jörðinni, ekki þarf að grafa djúpt í jörðu eða fara langt upp frá yfirborði hennar til þess að vera komin í líflaust efni. Lífhjúpurinn, lífhvolfið, er hlutfallslega mun þynnra um Jörðina en flusið er utan um eplið. Líf hefur verið á Jörðu í um 3600 milljónir ára. Lengst af voru þetta bara örsmáar lífverur en svo stækkuðu þær og þróuðust og sumar urðu risastórar, risaburknar, risaeðlur, risafurur ... Ef hægt væri að taka allar lífverur sem einhvern tíma hafa verið á Jörðinni, allar plöntur, öll dýr, alla sveppi og bakteríur, alla menn, og sópa þeim saman í kúlu þá yrði sú kúla miklu stærri en Jörðin. (Þetta er auðvitað alls ekki hægt en við getum alla vega hugsað okkur samanlagt rúmmál allra þessara lífvera í einni kúlu.) Kúlan yrði í svipuðu stærðarhlutfalli við Jörðina og melónan við eplið. Samt væru í stóru kúlunni bara 24 af frumefnum Jarðar og þetta lifandi efni hefði aldrei verið nema í örþunnu lagi utan um Jörðina en kúlan með lífverunum væri gegnheil. Hvernig getur þetta staðist? Oft verður fátt um svör í bekkjum. En svarið er að lífríkið er alltaf að nota sama efnið aftur og aftur. Dæmi: Kolefni er byggingarefni lífrænna sameinda og er nauðsynlegt öllum lífverum. Kolefnissögn sem er í frumu í fingrinum á mér núna, fékk ég kannski úr gulrótinni sem ég borðaði í gær. Gulrótarplantan hafði gripið þessa kolefnisögn úr andrúmsloftinu við ljóstillífun í sumar, kannski hafði fugl nýlega andað henni frá sér, rétt eins og ég mun gera einn góðan veðurdag, o.s.frv., o.s.frv. Kannski var þessi sama kolefnissameind fyrir 100 milljónum ára í myndarlegri risaeðlu eða ógurlegum undirdjúpafiski. Lífríkið notar allt efni aftur og aftur, nánast eins og þegar börn leira úr slatta af leir. Til að skapa nýja hluti úr leirnum verða þau að skemma þá gömlu. Allt efni er á stöðugum hringrásum um náttúru og lífríki. Allt brotnar niður og nýjar lífverur eða fyrirbæri verða til. Fólk er hlekkur í þessum hringrásum, rétt eins

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=