Sjálfbærni - Rit um grunnþætti menntunar

Grunnþættir menntunar 15 fjölmargar fjölþjóðlegar ráðstefnur og gerðir samningar um ýmis mikilvæg mál. Þar má nefna bókun sem kennd er við Kyoto í Japan og var gerð í framhaldi af loftslagssamningnum frá Ríó 92. Hún tók gildi árið 2005 og þar skuldbundu ríki sig til að minnka verulega útstreymi gróðurhúsalofttegunda. Annað merkt samkomulag er Jarðarsáttmálinn 9 sem samþykktur var í Jóhannesarborg árið 2002, þegar tíu ár voru liðin frá heimsráðstefnunni í Ríó. Hann átti að vera sambærilegur öðrum sáttmálum Sameinuðu þjóðanna eins og Mannréttindasáttmálanum og Barnasáttmálanum . Ýmislegt hefur áunnist síðan í Ríó 92 en ekki er hægt að horfa fram hjá því að mál mjakast allt of hægt. Til dæmis neituðu stórar lykilþjóðir að samþykkja Kyotobókunina , aðrar fóru fram á undanþágur frá ákveðnum ákvæðum hennar. Í orði hafa flestar þjóðir viðurkennt vandann og stefna að sjálfbærni en í raun gengur hægt að snúa við óheillaþróun á ýmsum sviðum. Ef til vill var auðvelt að bregðast við ósoneyðingunni. Vandamálið tiltölulega einangrað og stjórnvöld þjóða gátu bannað notkun efnanna og fylgt banninu eftir. Menn hafa lengst af litið á þá þætti sem sjálfbærni er samtvinnuð úr sem einangraða og aðskilda. Sú þröngsýni er hluti af vandanum, kannski mesti vandinn. Leitast hefur verið við að leysa vandamál hagkerfisins án tillits til samfélags og samfélagsvandamál án tillits til náttúru og umhverfis. Í raun eru þessir þættir Samkomulag um ósonlagið Ósonlagið er efst í lofthjúpi Jarðar og ver lífríki hennar fyrir hættulegum, útfjólubláum geislum sólar. Ákveðin iðnaðarframleidd efni, sem til dæmis voru notuð í slökkvitæki, ísskápa og úðabrúsa, eyða ósonlaginu. Mikilvægt þótti að ná samkomulagi um að takmarka sem mest notkun efnanna. Tiltölulega fljótt eftir að áhrif þeirra þóttu sönnuð tókst að ná samkomulagi fjölmargra þjóða að hætta að nota ósoneyðandi efni. Nú er talið að notkun þeirra sé hverfandi miðað við það sem hún var. Líftími þessara efna er hins vegar langur og því munu þau lengi hafa áhrif. Ósonlag Jarðar er farið að þykkna á ný þótt það muni ekki ná fyrri þykkt fyrr en um eða eftir miðja þessa öld.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=