Sjálfbærni - Rit um grunnþætti menntunar

SJÁLFBÆRNI 14 en áður að tileinka sér þekkingu annarra, það þarf að viðurkenna niðurstöður sem vísindamenn afla og fara að ráðum þeirra sem gjörst þekkja. Fólk verður að vera fúst til að stíga út úr ákveðnum þægindahring og tileinka sér breytta lífshætti til að virða lýðréttindi og jafnrétti til handa öllum, líka þeim kynslóðum sem enn eru ófæddar. Forsenda þessa er að fólk menntist og alist upp við sjálfbæra þróun. Þar er hlutverk skóla og kennara mikilvægt. Sjálfbær þróun festist í sessi – eða hvað? Ljóst er að allt það sem sagt var og skrifað við undirbúning Ríó 92 og á heimsráðstefnunni sjálfri spratt ekki upp af sjálfu sér. Lengi höfðu hljómað viðvörunarorð fólks sem bar umhyggju fyrir umhverfi sínu. Eðlilega áttaði fólk sig fljótt á staðbundnum áhrifum, sá einstaka staði í náttúrunni eyðileggjast og vildi koma í veg fyrir það. Því var svo kölluð staðbundin náttúruvernd, það er friðun einstakra staða, langt á undan almennri náttúruvernd sem nær til alls umhverfis og samfélags. Flestar þjóðir höfðu friðlýst náttúrustaði og stofnað þjóðgarða áður en þær samþykktu einhvers konar lög um verndun náttúru og umhverfis almennt, eins og varnir gegn mengun. Upp úr miðri síðustu öld, ekki síst á sjöunda áratug aldarinnar, komu út fjölmargar bækur eftir hugsuði á ýmsum sviðum sem vöruðu meðal annars við auðlindaþurrð og mikilli fólksfjölgun í heiminum og mengun og notkun eiturefna. Margar þessara bóka höfðu gífurleg áhrif og vöktu jafnvel ótta. Í raun var Brundtland-skýrslan dropinn sem fyllti mælinn svo að Sameinuðu þjóðirnar og fjölmargar ríkisstjórnir tóku ærlega við sér. Fólk áhugasamt um verndun Jarðar leit björtum augum til framtíðar árið 1992. Í Ríó 92 var öllu tjaldað til, nú skyldi óheillaþróun í umhverfismálum snúið við. Heil kynslóð hefur vaxið úr grasi síðan þá. Hvað hefur breyst? Af þeim málum sem allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna 1989 nefndi að taka þyrfti á hefur náðst góður árangur við að leysa vandann um eyðingu ósonlagsins. Þá þegar, eða árið 1987, hafði verið gert samkomulag fjölmargra þjóða um bann við notkun ósoneyðandi efna, kennt við Montreal í Kanada. Hvers vegna hefur ekki tekist eins vel að leysa önnur mál, loftslagsbreytingar, mengun, eyðingu auðlinda, misskiptingu verðmæta og skelfilega fátækt margra? Haldnar hafa verið

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=