Sjálfbærni - Rit um grunnþætti menntunar

SJÁLFBÆRNI 10 verði að taka tillit til umhverfisverndar ef ekki eigi að stefna framtíð afkomenda okkar í voða og að öll ríki heims beri ábyrgð á að vernda umhverfið og að minnka og hætta ósjálfbærum framleiðslu- og neysluháttum. Í yfirlýsingunni koma fyrir hugtök sem síðan heyrast oft í umræðunni, eins og varúðarregla og umhverfismat. 5 Yfirlýsing um skóga: Yfirlýsingin var fyrst og fremst hugsuð til verndar regnskógunum. Hins vegar urðu um hana miklar deilur á milli landa í „norðri“ og „suðri“, eins og stundum er sagt, og yfirlýsingin varð ekki lagalega bindandi. Framkvæmdaáætlunin Dagskrá 21: Á heimsráðstefnunni í Ríó náðist pólitísk samstaða 178 þjóða um mikið skjal sem er 500 blaðsíður að lengd og skiptist Orð um sjálfbæra þróun Orðasambandið sjálfbær þróun fór öfugt ofan í margan Íslendinginn og lengi var deilt um hvort ekki mætti finna annað betra. Umræðan snerist um umbúðirnar en ekki innihaldið eins og oft vill verða! En það var heldur ekkert sjálfgefið að samþykkja innihaldið og hugmyndafræðina. Væri þessi „sjálfbæra þróun“ ekki bara eitthvað nýtt og óskiljanlegt sem kæmi frá útlöndum og kæmi okkur ekki við því að Ísland væri fyrirmyndarland í umhverfismálum? Löng hefð er fyrir því að tala um „þróaðar“ þjóðir og „vanþróaðar“. Nú var verið að segja að í raun væru allar þjóðir vanþróaðar að þessu leyti og að allar þjóðir þyrftu að þróast, þróast til sjálfbærni. Kannski ekki síst iðnaðarþjóðirnar sem hingað til höfðu talið sig háþróaðar. Færa mátti rök fyrir því að þær þjóðir sem helst væru háþróaðar hvað varðaði sjálfbærni væru þær sem hingað til höfðu verið kallaðar frumstæðar, einhverjir ættbálkar í frumskógum sem enn lifðu nánast á steinaldarstigi í sátt við náttúrlegt umhverfi sitt. Þýddi þetta að Íslendingar ættu að snúa aftur í torfbæi og að ganga í sauðskinnsskóm? Enginn vildi hverfa til þess tíma. Úrlausnarefnið er hins vegar: Hvernig má vinna að því að allt fólk búi við ásættanleg lífsgæði en jafnframt séu náttúrulögmál virt og auðlindum viðhaldið svo að komandi kynslóðir fái einnig búið við mannsæmandi aðstæður, rétt eins og við?

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=