Sjálfbærni - Rit um grunnþætti menntunar

Grunnþættir menntunar 9 • Viðurkenna skal rétt þjóða til að ráða nýtingu auðlinda sinna svo fremi sem þær geri það á sjálfbæran hátt og án þess að menga eða spilla auðlindum annarra þjóða. Tilgangur heimsráðstefnunnar skyldi einnig vera sá að vekja athygli heimsins á umhverfis- og þróunarmálum ef það mætti verða til þess að þjóðþing og þjóðarleiðtogar tækju aukið tillit til umhverfismála í ákvörðunum sínum og efnahagsstjórn og settu slík mál í forgang. 3 Undirbúningur heimsráðstefnunnar var langur og mikill. Alþjóðlegar nefndir, ráð og ráðstefnur unnu drög að ályktunum sem áhugi var á að samþykktar yrðu á heimsráðstefnunni og einnig framkvæmdaáætlun í umhverfismálum. Óskað var eftir að þjóðir heims, stofnanir og félög, öfluðu upplýsinga um ástand umhverfismála í heimalöndum sínum. Þannig safnaðist mikið efni. Sem dæmi má nefna að í tilefni þessa kom út, vorið 1992, skýrsla þar sem var í fyrsta skipti tekið saman heildstætt yfirlit um stöðu umhverfismála á Íslandi. 4 Heimsráðstefnan var haldin fyrri hluta júní árið 1992 í Ríó de Janeiró. Þar mættu yfir hundrað þjóðarleiðtogar, miklu fleiri en nokkurn tíma áður á einn atburð. Þarna voru sendinefndir frá 178 þjóðum og skiptu fulltrúar á ráðstefnunni tugum þúsunda. Á sama tíma voru aðrir dagskrárliðir skipulagðir á vegum óháðra áhugasamtaka, svo kallað Global Forum . Talið var að gestir og þátttakendur þar hafi verið hátt í hálfa milljón. Á heimsráðstefnunni voru tveir mikilvægir samningar undirritaðir af yfir 150 ríkjum. Þeir voru um loftslagsbreytingar og um fjölbreytileika lífs á Jörðinni (lífbreytileika). Einnig voru samþykktar þrjár yfirlýsingar, Ríóyfirlýsingin , framkvæmdaáætlunin Dagskrá 21 og yfirlýsing um verndun skóga. Ríóyfirlýsingin: Lengi var von manna sú að þjóðir samþykktu Ríóyfirlýsinguna sem nokkurs konar skuldbindandi stjórnarskrá Jarðar. Það markmið náðist ekki en engu að síður er litið svo á að þátttökuþjóðirnar hafi með samþykkt sinni axlað pólitískar og siðferðilegar skuldbindingar í samræmi við yfirlýsinguna. Hún er 27 gagnorðar reglur og byggir á þeim skilningi að á Jörðu, heimili alls mannkyns, séu allir þættir hver öðrum háðir í samofinni heild. Lögð er áhersla á að hagþróun

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=