68 æfingar í heimspeki

32 68 ÆFINGAR Í HEIMSPEKI – Menntamálastofnun 2020 – 40596 Æfing 23: Hvað er krúttlegt? Gögn: Myndir af dýrum, blöð, skriffæri. Markmið: Hugtakagreining. Aldur: Allur aldur. Lýsing: Þátttakendum er skipt í hópa. Hver hópur fær nokkrar myndir af dýrum sem leið- beinandi hefur tekið saman. Allir hópar fá sömu myndirnar. Hóparnir vinnaþar semþeir getaekki fylgstmeðhver hjáöðrumog raðamyndunum niður eftir því hvaða dýr er krúttlegast, næst krúttlegast, þriðja krúttlegast o.s.frv. Óskað er eftir því að rökstuðningur fylgi með ákvörðun hópsins og ef um ágreining er að ræða skal gera grein fyrir honum. Þegar allir hópar hafa lokið störfum sínum koma þeir saman og gera grein fyrir niðurstöðum sínum. Þá kemur í ljós hvort skilningur þátttakenda á hugtakinu krúttlegt sé sambærilegur. Að endingu er reynt að finna skilgreiningu á hugtakinu krúttlegt í ljósi þeirrar vinnu sem fram fór. Einnig má útfæra þetta verkefni þannig að hver hópur rannsaki fleiri en eitt sett af myndum, allt eftir því hve mikinn tíma hóparnir hafa. Æfing 24: Hvað er fallegt? Gögn: Myndir af því sem rannsakað er, blöð, skriffæri. Markmið: Hugtakagreining. Aldur: Miðstig og eldri. Lýsing: Þátttakendum er skipt í hópa. Hver hópur fær nokkrar myndir sem leiðbeinandi hefur tekið saman af einhverju sem flokka má sem mismunandi fallegt. Hér gæti verið um að ræða myndir af fólki, byggingum, bílum, listaverkum, náttúrufyrirbærum, s.s. blómum, fossum o.s.frv. Allir hópar fá sömu myndirnar. Hóparnir vinna þar sem þeir geta ekki fylgst með hver hjá öðrum og raða myndunum niður eftir því hvað er fallegast, næst fallegast, þriðja fallegast o.s.frv. Óskað er eftir því að rökstuðningur fylgi með ákvörðun hópsins og ef um ágreining er að ræða skal gera grein fyrir honum. Þegar allir hópar hafa lokið störfum sínum koma þeir saman og gera grein fyrir niðurstöðum. Þá kemur í ljós hvort skilningur þátttakenda á hugtakinu fallegt sé sambærilegur. Að endingu er reynt að finna skilgreiningu á hugtakinu fallegt í ljósi þeirrar vinnu sem fram fór. Einnig má útfæra þetta verkefni þannig að um fleiri en eitt sett af myndum sé að ræða sem hóparnir rannsaka t.d. ef myndir af fólki eru skoðaðar gæti eitt sett mynda verið af konum og annað af körlum.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=