Samvinna um læsi - Tillaga um gagnvirkan lestur

9 Menntamálastofnun | 2021 Tillaga að framkvæmd Það er að ýmsu að hyggja þegar fræðslufundur er skipulagður og boðað til hans. Ákveða þarf efnistök, hver eða hverjir eigi að flytja efnið og hvort fræðslunni verði fylgt eftir með hvatningu, upprifjun eða öðrum hætti. Gott er að hafa í huga að gott skipulag, skýr rammi um fræðslufundinn og viðvera skólastjórnenda eru skýr skilaboð til foreldra um mikilvægi fundarins. Hér fyrir neðan er hugmynd að skipulagi sem hægt er að hafa til hliðsjónar þegar valin er heppilegasta leiðin fyrir skólann varðandi námskeiðshaldið. Athugið að þetta er einungis dæmi um útfærslu. VERKEFNI Fyrirkomulag fundartíma Fundarboð og skráning Flutningur efnis FRAMKVÆMD ÁBYRGÐARAÐILI Tveir fundir haldnir, annar að kvöldi og hinn að morgni, nokkrir dagar hafðir á milli. Stjórnandi sér um að kanna og velja hentugar dagsetningar í samstarfi við umsjónar- og sérkennara. Umsjónarkennarar skrá foreldra á fræðslufund á viðtalsdegi í upphafi skóla- árs. Ef fundurinn er það seint að ekki hentar að skrá þann dag senda um- sjónarkennarar póst með tímasetningum sem foreldrar geta valið og kalla eftir svörum foreldra innan viss tíma. Ef ætlunin er að allir nemendur eigi full- trúa á fundinum afhendir umsjónarkennari stjórnanda nöfn þeirra sem ekki hafa boðað komu sína á annan hvorn fundinn, stjórnandi hringir og kannar hvor tíminn hentar. Umsjónarkennari sér til þess að mætingarblað þar sem foreldrar skrá viðveru sé til staðar á fundinum svo hægt sé að fá yfirlit yfir raunverulega mætingu. Sérkennari og umsjónarkennari/-kennarar skipta efninu á milli sín í samræmi við hlutverk en sérkennari ber ábyrgð á að setja efnið saman í eina heild þannig að allir séu sáttir með sinn hluta og fræðslan rökrétt. Sérkennari gerir grein fyrir störfum sínum, skimunum, vísbendingum um vanda, viðmiðum og því sem mætti flokka sem fræðilega hluta kynningarinnar. Umsjónarkennari segir frá kennsluaðferðum s.s. innlögn, lestri í skóla og væntingum til foreldra varðandi þjálfun heima. Stjórnandi Umsjónarkennari Sérkennari Viðstaddir á vegum skólans Það er gott ef allir sem koma að lestrarkennslu og þjálfun í árganginum eru viðstaddir svo foreldrar fái að sjá þá. Einhver af stjórnendum skólans ætti ávallt að vera viðstaddur fræðslufund, bæði til að vera meðvitaður um skila- boðin til foreldra og eins til að undirstrika mikilvægi verkefnisins. Stjórn- endur geta skipst á að mæta en einn þeirra er ábyrgur fyrir að sjá til þess að einhver sitji fundinn. Stjórnandi er ábyrgur fyrir því að bjóða og gera öðrum kennurum og stuðningsfulltrúum skólans kleift að sitja fund til að gera þá meðvitaða um fræðsluna og þau skilaboð sem skólinn sendir foreldrum. Stjórnandi Foreldrar sem mættu ekki Foreldrar barna með ÍSAT Stjórnandi með aðstoð umsjónarkennara kannar hvort og þá hverjir komu ekki á fræðslufundinn og afstaða tekin til þess hvort rétt sé að a) boða þá á sérstakan fund. b) senda póst með helstu atriðunum og hvetja til samstarfs. Gæta þess að boða viðeigandi túlk/túlka á fundi og upplýsa foreldra um að fundurinn verði túlkaður. Eftirfylgni Eitt og eitt atriði sem umsjónarkennara finnst mikilvægt nefnt í vikulegu fréttabréfi. Stjórnandi og umsjónarkennari Stjórnandi Umsjónarkennari

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=