Samvinna um læsi - Tillaga um gagnvirkan lestur

8 Skipulag, efni og framkvæmd • Kynna valda efnisþætti á haustfundum eða öðrum fundum sem haldnir eru í skól- anum. • Kynna á samfélagsmiðlum skólans. Ef ætlunin er að nýta efnið til þess að halda fræðslufund þarf að huga að nokkrum atriðum: • Velja þann sem ber ábyrgð á fræðslunni hvort sem það er stjórnandi eða kennari. • Velja þann eða þá sem bera ábyrgð á um- sjón og framkvæmd fræðslunnar ef það er annar en ábyrgðaraðili. Gott getur verið að mynda teymi sem hjálpast að. • Velja markhóp fyrir fræðsluna. • Ef ætlunin er að ná til foreldra allra barna tiltekins árgangs getur verið góð hugmynd að bjóða upp á tvo mismunandi fundar- tíma til að auka líkur á að allir komst; sem dæmi einn fund að morgni og annan að kvöldi. • Móta þarf stefnu um hvort þátttaka for- ráðamanna í fræðslu sé valkvæð eða hvort gert er ráð fyrir að allir mæti. Ef sú stefna er mörkuð að allir forráðamenn skulu upp- lýstir um fræðsluefnið þarf að huga að eftirfylgni skólans varðandi þá sem ekki koma. Fræðsluefnið samanstendur af þessari hand- bók, kennslumyndböndum um gagnvirkan lestur, skipulagi gagnvirks paralestrar og texta til að þjálfa foreldra í notkun aðferðarinnar. Í handbókinni eru reitir með heitinu Stuðn- ingsefni en þar má finna krækjur á ítarefni og lestraraðferðir á neti sem hægt er að smella á til að nálgast efnið. Fræðslan miðar að því að: • Gefa foreldrum nokkra innsýn í marg- slungið eðli lesskilnings. • Auka skilning foreldra á mikilvægi um- ræðu um innihald texta. • Kenna foreldrum að lesa með börnum sínum í gagnvirkum paralestri. Fræðsluefnið hentar fyrir nemendur sem komnir eru af stað í lestri. Ef ætlunin er að boða foreldra heilla árganga á fundi eða senda þeim upplýsingar má miða við 3. bekk og eldri. Í framsetningu efnisins er gert ráð fyrir að haldinn sé fundur með foreldrum en með því að fá þá á staðinn er þeim gefið tækifæri til að spyrja og koma með athugasemdir auk þess sem þeir geta prófað gagnvirkan paralestur sjálfir. Hægt er að nýta efnið með öðrum hætti, til dæmis er hægt að taka eitt eða fleiri efnisatriði og: • Senda heim stutt skilaboð gegnum frétta- bréf, vikupistla eða samfélagsmiðla skól- ans. Menntamálastofnun | 2021

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=