Samvinna um læsi

5 Menntamálastofnun | 2021 Opin og hreinskiptin samskipti milli aðila sem eiga sameiginlegra hagsmuna að gæta eru afar mikilvæg. Þetta gildir ekki síst um sam- starf heimila og skóla enda sameiginlegt hagsmunamál að efla nemendur á allan hátt. Eitt af lögbundnum hlutverkum grunnskóla er að hafa frumkvæði að þessu samstarfi. Í aðal­ námskrá grunnskóla kemur fram að gagn- kvæm upplýsingagjöf og samráð sé forsenda árangursríks skólastarfs. Þar er einnig bent á gildi þess að foreldrar kynnist daglegu starfi skólans, enda aukist þá líkur á þátttöku þeirra sem getur stuðlað að bættum árangri og líðan barnanna. Það vill gleymast að eina reynsla margra for- eldra af starfi grunnskóla er eigin skólaganga og því nauðsynlegt að þeir fái tækifæri til að kynnast skólastarfinu og eiga samtal við kenn- ara barna sinna um ólík hlutverk og ábyrgð í náminu. Þegar upp er staðið er farsælast að allir sem að námi barna koma taki höndum saman með gagnkvæmri virðingu fyrir þekk- ingu hvers annars. Markmiðið með efninu er að foreldrar fái fræðslu um mikilvæga þætti lestrarnáms, upplýsingar um kennsluhætti skólans og þær væntingar um lestrarþjálfun sem eru gerðar til þeirra. Síðast en ekki síst fái þeir leiðbeiningar og aðferðir til að geta staðið undir þessum væntingum. Þar sem áherslur skóla geta verið mismunandi verður að líta á þetta efni sem tillögur að for- eldrafræðslu. Nauðsynlegt er að útbúin sé sérstök kynning í hverjum skóla fyrir sig, tekin afstaða til þess hve mikið af upplýsingum úr þessari handbók eru nýttar og hvort hald- inn sé fundur eða efninu miðlað með öðrum hætti. Uppsetning fræðsluefnisins er með þeim hætti að sett hefur verið upp dæmi um glærukynningu sem hægt er að styðjast við að eins miklu leyti og hentar hverjum skóla fyrir sig. Hverri glæru fylgir ítarlegri umfjöllun um efnið til að auðvelda flytjendum að skipu- leggja mál sitt. Einnig eru tilvísanir í frekara lesefni og heimildir. Hafa ber í huga að þrátt fyrir að efnið sé ætlað til fræðslu fyrir foreldra barna í 1. bekk er hægt að nota hluta af því til fræðslu í öðrum árgöngum eftir því sem við á. Fræðslufundir fyrir foreldra um lestur og lestrarnám

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=