Ritrún 3

RITRÚN 3 40133 Ritrúnarbækurnar eru handa börnum á yngsta stigi grunnskólans. Bókunum er ætlað að mæta markmiðum í aðalnámskrá grunnskóla um að nemendur öðlist jákvætt viðhorf til móðurmáls- ins, kynnist byrjunaratriðum í málfræði og geti skrifað skýrt og læsilega við lok 4. námsárs. Ritrún 3 er síðasta heftið í röð þriggja hefta. Við- fangsefnin í bókinni eru miðuð við börn sem hafa náð nokkrum tökum á ritun og lestri. Í bókinni kynnast þau grunnatriðum í málfræði, greinar- merkjum og nokkrum stafsetningarreglum. Höfundar Ritrúnarbókanna eru Kolbrún Sigurðar- dóttir og Þóra Kristinsdóttir . Þær hafa báðar ára- langa reynslu af kennslu, bæði í grunnskóla og við Kennaraháskóla Íslands, auk þess sem þær hafa samið fjölmargar námsbækur í íslensku fyrir grunnskóla. Teikningar eru eftir Ingu Maríu Brynjarsdóttur.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=