RISAstórar smáSÖGUR 2024

95 í fýlu í hengirúminu sínu því að hann var handviss um að allir vinirnir myndu gleyma deginum hans. En þeir höfðu allir munað eftir honum og glaðst með honum. Þessi dagur var allt sem hægt er að óska sér. Það er núna tímabært ganga að hægt og rólega út úr skógarþykkninu, ef til vill veltir þú því fyrir þér lesandi góður hvers vegna ég sagði þér þessa sögu af Rebba ref og vinum hans. Hvers vegna ég eyddi tíma þínum í að hlusta og sperra eyrun. En veistu, sumt má ekki segja strax og sumt er ekki hægt að segja í einni línu. Það þarf heila sögu til þess að útskýra suma hluti. Ég er því hræddur um að svarið liggi í næstu bók og næstu bók skrifa ég handa þér til þess að svara þessari spurningu þinni.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=