RISAstórar smáSÖGUR 2024

71 Þær fóru til að loka glugganum en sáu þá splunkuný skíði í gluggakistunni. Á skíðunum var lítill miði sem á stóð „Til Kötlu og Soffíu, takk fyrir allt.“ Þetta var besta gjöf sem systurnar gátu hugsað sér. „Við verðum að fara að prófa þau,“ sagði Soffía. Systurnar fóru út til þess að prófa skíðin en voru á sama tíma hugsi yfir því hvað hefði orðið um pakkaræningjana. „Ætli þeir séu enn þá inni í hellinum? Ætli þeir hafi komist út?“ sagði Soffía.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=