RISAstórar smáSÖGUR

39 Síðan setjumst við Embla í sófann og kveikjum á þætti til að horfa á meðan við róum taugarnar. Stuttu síðar kemur mamma æðandi inn og tveir hugrakkir lögreglumenn á eftir henni. Mamma er æst og í uppnámi og löggan fer strax að leita um allt hús að hræðilegu mannætuköngulónni. Við sitjum sallarólegar í sófanum og fylgjumst með þeim og þegar þau koma öll til okkar og vilja útskýringar þá skiljum við bara ekki neitt. Við hristum hausinn og sannfærum alla um að það sé bara allt í góðu. Mamma spyr að lokum um hræðilegu risaköngulóna og þá svara ég: „hvaða könguló?“

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=