RISAstórar smáSÖGUR

37 Ég fylgi í fótspor hennar en hef ekki augun af ógeðinu. Við stöndum síðan þarna tvær saman í horninu dauðskelkaðar og æpum eins hátt og við getum. Ég veit að það þýðir ekkert að standa bara þarna og öskra svo ég ákveð að reyna að vera jafn hugrökk og Katniss Everdeen. Ég hleyp fram á gang og gríp það fyrsta sem ég sé sem er þykk bók sem ég gleymdi að ganga frá í gær. Ég flýti mér svo aftur inn í herbergi og BÚMM ... lem köngulóna með bókinni. En þá gerist nokkuð hræðilegt og alveg óvænt. Köngulóin stækkar og er allt í einu orðin jafn stór og köttur! Þetta er alveg skelfilegt. Risastór og ógeðsleg Andrea Ísold Jóhannsdóttir, 9 ára

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=