RISAstórar smáSÖGUR

32 sinni búið að elda hann. Pabbi útskýrði að þar sem þetta væri fyrsti laxinn kallist það að fá maríulax og þá bítur maður veiðiuggann af. Loks var þessi fyrsti veiðidagur búinn. Pabbi keyrði eins og brjálæðingur í myrkrinu til þess að drífa sig að elda lambaskankana. Það er uppáhaldsmaturinn minn. Þegar ég og Alex fórum að sofa gerðist eitthvað og við heyrðum allskonar skrítin hljóð. Við litum út um gluggann og sáum ref. Við vorum skíthrædd og sofnuðum ekki fyrr en um miðja nóttina. Þegar við vöknuðum var pabbi löngu farinn út að veiða. Eftir morgunmatinn kom hann að sækja okkur, við þurftum að reyna að veiða meira. Það var ískalt og við horfðum á pabba sveifla veiðistönginni fram og aftur meðan við sátum inni í bíl. Síðan var komið hádegi og þá var komið að því að fara í sund.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=