RISAstórar smáSÖGUR

31 henni fannst þetta ferlega ógeðslegt. Pabbi stóð stjarfur og lét okkur kasta til skiptis. Þegar Alex var að veiða byrjaði stöngin að bogna og pabbi öskraði: „Hann er á! Náðu í mömmu!“ Alex barðist við stöngina. Pabbi öskraði: „Hann er risi!“ Mamma var að missa sig á myndavélinni og deyja úr spenningi. María spurði: „Hvernig fiskur heldurðu að þetta sé?“ „Þetta er lax,“ gólaði pabbi. Alex náði að tosa laxinn upp úr ánni. Pabbi var skrítinn og alveg óður. Hann bankaði í hausinn á laxinum. En það var enn skrítnara sem pabbi bað Alex um að gera. Hann átti að bíta einhvern flipa af fisknum og það var ekki einu

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=